Þessir skilmálar gilda um notkun á hugbúnaðarlausnum sem Datera veitir þér aðgang að: Kvasir mælaborð, Mími og Birtu, sem hér eftir nefnast sameiginlega „Þjónustan“. Með því að skrá þig inn í Þjónustuna samþykkir þú skilmála þessa fyrir eigin hönd og, ef þú notar hana í starfi, fyrir hönd þíns fyrirtækis eða stofnunar. Hafi fyrirtæki þitt gert sérstakan skriflegan samning við Datera um Þjónustuna gildir sá samningur framar skilmálum þessum ef ákvæðum ber saman.
1. Hverjir mega nota Þjónustuna
Þjónustan er veitt viðskiptavinum Datera og starfsfólki þeirra, auk starfsfólks Datera sjálfs. Aðgangur er eingöngu samkvæmt boði. Engin opin nýskráning er í boði og óheimilt er að deila innskráningarupplýsingum með öðrum eða leyfa öðrum að nota aðganginn þinn.
Hvert fyrirtæki tilnefnir einn eða fleiri kerfisstjóra sem ákveða hverjir innan fyrirtækisins mega nota Þjónustuna, hvaða heimildir þeir hafa og hvaða gögn þeir sjá. Datera starfar samkvæmt fyrirmælum þessara kerfisstjóra.
2. Aðgangurinn þinn
Þú berð ábyrgð á því að halda innskráningarupplýsingum þínum leyndum og á allri virkni sem á sér stað undir þínum aðgangi. Láttu okkur vita tafarlaust á hjalp@datera.is ef þú telur að aðgangur þinn hafi verið notaður í leyfisleysi.
Okkur er heimilt að loka tímabundið fyrir aðgang ef rökstuddur grunur leikur á að öryggi hans sé ógnað eða hann notaður í trássi við skilmála þessa. Við munum láta notandann eða viðkomandi kerfisstjóra vita þegar slíkt á sér stað.
3. Heimiluð notkun
Þú samþykkir að:
nota Þjónustuna aldrei í ólögmætum tilgangi eða til að brjóta á réttindum annarra
hlaða ekki upp eða búa til efni sem mismunar fólki, er ærumeiðandi, áreitandi eða á annan hátt skaðlegt
reyna ekki að komast yfir gögn, aðganga eða kerfi sem þú hefur ekki heimild til að skoða
kanna ekki veikleika, álagsprófa eða trufla innviði og virkni Þjónustunnar
beita ekki sjálfvirkum aðferðum til að sækja gögn úr Þjónustunni, nema með sérstökum eiginleikum sem við bjóðum upp á í þeim tilgangi
nota ekki gervigreindareiginleika til að búa til efni sem hermir eftir raunverulegri manneskju án hennar samþykkis, eða sem ætlað er að blekkja
Okkur er heimilt að fjarlægja efni eða loka fyrir aðgang til að framfylgja þessum ákvæðum.
4. Efnið þitt
Efni sem þú eða fyrirtæki þitt setur inn í Þjónustuna—þar á meðal skrár, fyrirspurnir (prompts), vörumerkjaefni og birtingaáætlanir—er áfram þín eign eða fyrirtækis þíns. Þú veitir Datera og vinnsluaðilum þess leyfi til að vinna með efnið eins og nauðsyn krefur til að veita Þjónustuna. Við notum ekki efnið þitt til að þjálfa gervigreindarlíkön og leyfum þjónustuaðilum okkar ekki að gera það. Hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar er hægt að sjá nánar á síðu um persónuvernd og gagnavinnslu, sem telst hluti af skilmálum þessum.
5. Efni búið til með gervigreind
Mímir býr til texta og myndir með gervigreindarlíkönum. Úttakið verður til sjálfkrafa, getur verið ónákvæmt, ófullkomið eða óviðeigandi, og er sett fram til að þú getir yfirfarið það, breytt og gert að þínu; það telst ekki formleg ráðgjöf. Þú berð sjálf(ur) ábyrgð á því að sannreyna allt efni sem þú birtir eða byggir ákvarðanir á. Allt efni sem þú býrð til tilheyrir þér eða fyrirtæki þínu, með fyrirvara um skilmála undirliggjandi módel-veitu (e. model provider).
6. Tengdir aðgangar
Kvasir mælaborð birta gögn úr auglýsinga- og vefgreiningaraðgöngum sem fyrirtæki þitt hefur veitt Datera heimild til að lesa, ásamt öðrum gögnum sem þú kannt að hafa afhent í þeim tilgangi. Þú staðfestir að þú hafir heimild til að afhenda gögn og veita þann aðgang. Notkun Datera á gögnum frá Meta, Google og öðrum miðlum lýtur jafnframt skilmálum þeirra. Þú getur afturkallað þá aðganga hvenær sem er í stillingum viðkomandi kerfa eða með því að hafa samband við tengilið þinn hjá Datera.
7. Aðgengi og breytingar
Við stefnum að því að hafa Þjónustuna stöðugt aðgengilega en ábyrgjumst ekki samfellda virkni án truflana. Við getum breytt, bætt við eða fjarlægt eiginleika og framkvæmt viðhald með hæfilegum fyrirvara þegar það hefur áhrif á aðgengi. Ef við hyggjumst hætta að bjóða upp á tiltekna Þjónustu eða Þjónustuþætti munum við tilkynna það viðkomandi fyrirtækjum með að minnsta kosti 60 daga fyrirvara.
8. Gjöld
Fees for the Services, where they apply, are set out in the agreement between Datera and your organisation. These terms do not themselves create any payment obligation for individual users.
9. Takmörkun ábyrgðar
Þjónustan er veitt „eins og hún er og sýnir sig“ (as is). Að því marki sem lög leyfa ber Datera enga ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, töpuðum hagnaði, gögnum sem glatast eða rekstrartruflunum sem hljótast af notkun eða vanhæfni til að nota Þjónustuna, né heldur vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli gagna eða efnis sem Þjónustan birtir eða býr til. Heildarábyrgð Datera gagnvart hverju fyrirtæki á tólf mánaða tímabili takmarkast við þau gjöld sem fyrirtækið greiddi fyrir viðkomandi Þjónustu á því tímabili. Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ábyrgð sem ekki er heimilt að takmarka samkvæmt lögum, svo sem vegna stórfellds gáleysis eða ásetnings.
10. Uppsögn og lokun aðgangs
Kerfisstjóri fyrirtækis þíns getur lokað fyrir aðgang þinn hvenær sem er. Þú getur einnig eytt þínum eigin aðgangi hvenær sem er samkvæmt leiðbeiningum á þjónustusíðum okkar. Datera getur lokað á aðgang fyrirtækis í samræmi við samning við viðkomandi aðila, eða tafarlaust vegna alvarlegra brota á skilmálum þessum. Við lok aðgangs er farið með gögn samkvæmt lýsingu í kafla um varðveislu gagna á þjónustusíðu okkar.
11. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi mál vegna þeirra sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
12. Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært skilmála þessa. Dagsetningin hér að neðan sýnir gildandi útgáfu. Verulegar breytingar verða tilkynntar kerfisstjórum fyrirtækja áður en þær taka gildi; áframhaldandi notkun á Þjónustunni eftir þá dagsetningu felur í sér samþykki á breyttum skilmálum.
13. Hafa samband
Datera ehf., Laugavegi 7, 101 Reykjavík, Ísland.
Síðast uppfært: 8. september 2026