
Sýnileikamæling í gervigreind
Ai
Sýnileikamæling í gervigreind
Á hverjum degi spyrja viðskiptavinir þínir ChatGPT, Gemini, Claude og Perplexity spurninga sem áður hófust með Google leit. Hvaða vörumerki eru nefnd í svörunum? Hverjum er mælt með? Sýnileikamæling (e. AI Visibility Benchmark) frá Datera gefur þér svörin - byggt á raunverulegum gögnum en ekki óskhyggju.
Hvað er sýnileikamæling í gervigreind?
Sýnileikamæling í gervigreind sýnir nákvæmlega hverju gervigreindartól svara þegar einhver spyr þeirra spurninga sem viðskiptavinir þínir spyrja dags daglega.
Við gerum ítarlega leitarorðagreiningu, og byggt á henni spyrjum við gervigreindartólin sömu spurninga og markhópurinn þinn, á tungumáli markhópsins, í því landi sem hann er, og skrásetjum svörin: Hvaða vörumerki eru nefnd, hverjum er mælt með, hver er settur í fyrsta sæti, og hvaða heimildir tólin lesa til að móta svörin sín.
Hver spurning er lögð fram endurtekið, í öllum helstu tólum. Þannig mælum við raunverulega hegðun gervigreindar frekar en að skoða bara eitt heppilegt eða óheppilegt svar.
Við spyrjum tólin ekki beint út í þitt vörumerki, því það myndi skekkja niðurstöðuna - við viljum vita hvað birtist á náttúrulegan hátt í svörum gervigreindar.
Niðurstaðan veitir þrennt sem hefðbundnar stöðuskýrslur fyrir leitarvélar geta ekki gert:
Hversu oft vörumerkið birtist í svörum gervigreindar
Hvar vörumerkið stendur í svörunum sjálfum (framarlega, aftarlega, jákvætt, neikvætt, o.s.frv.)
Hvaða heimildir gervigreindin er að nota þegar hún mótar svörin.
Hvað færðu?
- Sýnileiki vs. meðmæli. Hversu oft vörumerkið er nefnt og hversu oft svarið beinir lesandanum beint til þíns vörumerkis. Það er mikill munur á því að vera nefnt og að vera valið, og bilið þar á milli er oft mikilvægasta uppgötvunin.
- Hlutdeild í umræðu (Share of voice). Af öllum vörumerkjum sem eru nefnd í þínum geira, hversu mörg tilheyra þér og hversu mörg samkeppnisaðilum.
- Sundurliðun eftir gervigreindartólum. ChatGPT, Gemini, Claude og Perplexity hegða sér eins og fjórir ólíkir markaðir. Við sýnum þér hvar þú stendur sterkt og hvar ekki.
- Kaupferlið. Sýnileiki er kortlagður yfir fimm stig kaupferlisins, frá fyrstu upplýsingaleit að kaupákvörðun. Vörumerki sem hverfur þegar viðskiptavinurinn færist nær því að kaupa stendur frammi fyrir allt öðru vandamáli en vörumerki sem er ósýnilegt allan tímann.
- Geirinn í heild. Hvaða vörumerki og vefsvæði tólin nefna sem þú vissir ekki einu sinni að þú værir í samkeppni við.
- Heimildagreining. Sýnir hvaða vefsvæði og lén gervigreindin les og byggir svörin sín á. Þessi listi er mjög mikilvægur, því hann sýnir hvaða ytri upplýsingar hafa mest áhrif á svör gervigreindar, og þá um leið hvaða vinna utan þíns eigin vefs skiptir mestu máli.
- Orðrétt svör. Hvað tólin segja raunverulega, orð-fyrir-orð, jákvætt og neikvætt, þar á meðal heildarmynd af vörumerkinu þínu þegar spurt er beint út í það.
- Forgangsraðaðar aðgerðir. Ekki almenn ráð heldur markvissar aðgerðir, studdar gögnum og raðað eftir áætluðum árangri.
Af hverju skiptir þetta máli núna?
- Leitarhegðun er að breytast hratt: Sívaxandi hluti upplýsingaleitar fyrir kaup hefst á spjalli í gervigreindartólum en ekki á hefðbundnum leitarvélum.
- Í svörum gervigreindartóla á sigurvegarinn sviðið. Google leitarniðurstöður sýna yfirleitt tíu bláa hlekki, svar í gervigreindartóli nefnir venjulega aðeins tvö eða þrjú vörumerki. Ef þitt vörumerki er ekki eitt þeirra, þá er það ekki til í þeirri umræðu.
- Vörumerkið þitt getur verið í efsta sæti á Google en samt verið ósýnilegt í svörum gervigreindartóla. Tólin byggja svör sín á annars konar heimildum, samanburðarvefjum, umræðuvefjum, fréttamiðlum og jafnvel vefsíðum samkeppnisaðila, en ekki bara þínum eigin vef.
- Sagan sem samkeppnisaðilinn segir gæti þegar verið orðin að staðreynd í augum gervigreindarinnar. Þegar frásögn eins vörumerkis er eina útgáfan sem gervigreindin getur vitnað í, endurtekur hún þá frásögn sem staðreynd.
Þetta er ekki framtíðin. Þetta er að gerast núna, í þínum bransa, í dag.
Hvernig við mælum
Aðferðafræðin er það sem skilur á milli raunverulegrar mælingar og skoðana:
- Raunverulegar spurningar, engin stýring. Spurningarnar byggja á raunverulegri leitarorðagreiningu á tungumáli markhópsins. Engin þeirra nefnir þitt vörumerki eða samkeppnisaðila, fyrir vikið eru þau skipti þar sem þitt vörumerki vörumerki er sýnilegt raunverulega áunnin.
- Endurtekið í öllum tólum. Þar sem gervigreindarsvör eru breytileg er hver spurning er lögð fram oftar en einu sinni í hverju tóli. Við mælum hegðunina, ekki eitt stakt svar.
- Tölfræðilega marktækt. Allar tölur bera með sér öryggisbil. Lítil úrtök eru sérstaklega merkt sem 'vísbending', og aldrei sett fram sem staðfestar niðurstöður.
- Yfirfarið af sérfræðingum. Svörin eru greind af gagnalíkani sem er kvarðað við handmerkt gagnasett, og síðan yfirfarin og staðfest af sérfræðingum Datera.
Mælingar eru keyrðar á Versoria-kerfinu; hver úttekt er hönnuð og framkvæmd af Datera.
Mæla, lagfæra og mæla aftur
Sýnileikamælingin segir þér hvar þú stendur og af hverju. Gervigreindarúttekt Datera (AI Readiness Audit) segir þér hinsvegar hvað þú þarft að laga á þínum eigin vef. Saman mynda þær ferli sem skilar árangri:
Mæling - Mæla hvað tólin segja og hvað þau lesa.
Framkvæmd - Lagfæra efni, uppbyggingu og þær heimildir sem mælingin sýnir að sé ábótavant.
Endurtekin mæling - Keyra mælinguna aftur (og aftur) og fylgjast með þróuninni yfir tíma.
Þar sem svör gervigreindar breytast hratt samhliða nýjum tungumálalíkönum og heimildum, kjósa flestir viðskiptavinir að gera þessar mælingar ársfjórðungslega eða í tengslum við stórar herferðir.
Fyrir hvern er þetta?
Öll vörumerki þar sem viðskiptavinir framkvæma upplýsingaleit áður en þeir kaupa. Við höfum þegar framkvæmt mælingar fyrir viðskiptavini í orkugeiranum, bankaþjónustu, smásölu, ferðaþjónustu og fjarskiptum — á íslenskum sem og alþjóðlegum mörkuðum.
Ef fólk er að spyrja gervigreindina um þær vörur og þjónustu sem þú veitir, þá þarftu að vita hverju gervigreindin svarar.
Sendu okkur línu á hallo@datera.is eða óskaðu eftir mælingu fyrir þinn geira.
Gervigreindin er þegar byrjuð að lýsa vörumerkinu þínu, hvort sem það er rétt eða rangt, jákvætt eða neikvætt, með eða án þinnar aðkomu. Stóra spurningin er hvort þú vitir hvað hún er að segja.
Fyrsta skrefið er sýnileikamæling, svo þú vitir nákvæmlega hvar þú stendur.
Hafðu samband: hallo@datera.is