
Er vefsvæðið þitt tilbúið fyrir gervigreind?
Gervigreind
Gervigreindarúttekt
Vefurinn þinn gæti verið ósýnilegur í ChatGPT, Perplexity og öðrum gervigreindartólum, jafnvel þótt hann sé vel bestaður fyrir hefðbundnar leitarvélar. Gervigreindarúttekt frá Datera hjálpar þér að ná stjórn á stafrænum sýnileika í breyttu landslagi.
Hvað er gervigreindarúttekt?
Gervigreindarúttekt er sérhæfð skoðun á því hvernig vefsvæðið þitt birtist og er túlkað af gervigreindartólum. Við skoðum m.a.:
Hvort vefurinn þinn komi til greina í svörum frá ChatGPT og öðrum tólum.
Hvort LLM-tól geti greint vörur, þjónustu og staðsetningu á vefsvæði þínu.
Hvort vefurinn sé með rétta uppbyggingu og schema-markup sé til staðar.
Hvort tæknileg atriði eins og hraði, DOM röð og viðbragðstími séu til fyrirmyndar.
Af hverju skiptir þetta máli fyrir vefinn þinn?
Leitarhegðun er að breytast hratt, fólk notar AI-tól í auknu mæli á kostnað hefðbundinnar leitar.
Gervigreindartól vilja skýr og vel uppsett gögn á vefsvæðum svo þau skilji þau auðveldlega.
Leit er í dag að færast yfir í samhengi og samræður, ekki einstaka leitarorð og lendingarsíður. Vefurinn þinn og vörumerki þurfa að vera “relevant” í samtalinu.
Þú vilt tryggja að vefurinn þinn eða vörumerki sé að koma upp í samtölum fólks við gervigreindartól.
Þetta er ekki framtíðin, þetta er þegar byrjað.
Fyrir hverja eru þessar úttektir?
Við höfum nú þegar gert fjölmargar gervigreindarúttektir og eru viðskiptavinir okkar af ýmsum toga úr ferðaþjónustu, fjármálafyrirtæki, tryggingafyrirtæki, vefverslanir og fleiri. Ef þú ert með vef og vilt að notendur finni hann, þá er gervigreindarúttekt fyrir þig.
Þú getur sent okkur tölvupóst á netfangið hallo@datera.is
Þrjár úttektir - hvað hentar þér?
Við bjóðum upp á þrjár mismunandi úttektir: lítil, miðlungs og stór.
Lítil gervigreindarúttekt
Fyrir minni vefsvæði sem vilja einfalt og hnitmiðað mat.
Greining á schema-markup.
Uppbygging fyrirsagna og efnis.
Aðgerðalisti og næstu skref.
Miðlungs gervigreindarúttekt
Tæknileg úttekt með aðgerðaáætlun og mælikvörðum.
Greining á schema-markup og uppbyggingu fyrirsagna og efnis.
Hermun á því hvernig AI-tól túlka lykilsíður.
Aðgerðalisti og mælikvarðar.
Stór gervigreindarúttekt
Dýpri úttekt fyrir stærri vefsvæði með mörg efnislög og tæknilegt umfang.
Greining á schema-markup.
Greining á uppbyggingu efnis og hvernig efnið er túlkað af AI-tólum.
Hermun á því hvernig AI-tól og “assistants” lesa vefinn.
Forgangsraðaður aðgerðalisti og mælanlegum markmiðum.
Samantekt
Ef vefurinn þinn er ekki góður í augum gervigreindar þá ertu nú þegar að tapa sýnileika og heimsóknum. Þetta er ekki spurning um hvort þú þurfir að bregðast við, heldur hvenær og hversu hratt.
Fyrsta skrefið er að fá úttekt svo þú vitir hvar vefurinn þinn stendur og hvað þarf að laga.