Google Analytics 4

Allt sem þú þarft að vita um Google Analytics 4

Analytics

Analytics


Höfundur: Unknown Author

8 mín

Google Analytics 4, eða GA4, er mælitól frá Google sem hjálpar þér að skilja hvað fólk gerir á vefnum þínum. Það sýnir hvaðan gestirnir koma, hvaða síður þeir skoða, hvað þeir smella á og hvort þeir klára það sem skiptir máli, eins og að senda inn form, bóka tíma eða kaupa vöru. GA4 er í dag grunnur að góðri vefmælingu hjá flestum fyrirtækjum. En til að fá raunverulegt virði úr tólin er ekki nóg að setja það upp og vona það besta.

Hvað er Google Analytics 4?

GA4 er nýjasta útgáfan af Google Analytics. Tólið safnar gögnum um hegðun notenda á vefnum þínum og hjálpar þér að sjá hvað virkar og hvað má bæta.

Í stað þess að einblína bara á heimsóknir mælir GA4 líka einstakar aðgerðir. Það getur til dæmis mælt þegar einhver:

  • skoðar síðu

  • smellir á hnapp

  • fyllir út form

  • leitar á vefnum

  • byrjar kaupferli

  • klárar kaup eða fyrirspurn

Þetta gefur skýrari mynd af því sem notendur gera í raun.

Af hverju ættir þú að nota GA4?

Ef þú rekur vef, auglýsir á netinu og vilt að vefurinn skili raunverulegum árangri, þá þarftu að vita hvað er að gerast á síðunni þinni.

GA4 hjálpar þér að svara spurningum eins og:

  • Hvaðan kemur umferðin?

  • Hvaða síður skila mestum árangri?

  • Hvar detta notendur út?

  • Hvaða markaðssetning virkar best?

  • Hvaða efni fær fólk til að grípa til aðgerða?

Án slíkra gagna ertu í raun að taka ákvarðanir í hálfgerðu myrkri.

Hvernig virkar GA4?

GA4 virkar þannig að það skráir atburði (e. events) á vefnum. Atburður er einfaldlega eitthvað sem notandi gerir.

Það getur verið eitthvað lítið, eins og að skoða síðu, eða stærra, eins og að fylla út form og senda það, eða kaupa vöru.

Þetta skiptir máli vegna þess að heimsóknir einar og sér segja þér ansi lítið. Þú vilt vita hvort fólk geri eitthvað sem hefur raunverulegt virði, og þá hverjir það eru.

Hvað getur GA4 sagt þér?

GA4 getur hjálpað þér að sjá:

  • hversu margir heimsækja vefinn

  • hvaðan þeir koma

  • hvaða efni þeir skoða

  • hversu lengi þeir dvelja

  • hvaða tæki þeir nota

  • hvaða síður leiða til fyrirspurna eða kaupa

  • hvaða markaðsrásir skila bestum árangri

Þegar þetta er rétt sett upp færðu betri yfirsýn yfir alla notendahegðun, en ekki bara fyrstu heimsóknina.

Af hverju dugar ekki að nota bara sjálfgefna uppsetningu?

Þetta er einn mikilvægasti punkturinn.

Sjálfgefna uppsetningin í GA4 gefur þér grunnupplýsingar. Hún getur sagt þér hversu margir komu inn á vefinn og hvaða síður voru skoðaðar. En hún veit ekki sjálfkrafa hvað skiptir þitt fyrirtæki mestu máli.

GA4 veit til dæmis ekki sjálft:

  • hvert markmiðið með vefnum er

  • hvað þú vilt að notendur geri á vefnum

  • hvaða smellir eru verðmætir

  • hvenær notandi telst orðinn "liklegur viðskiptavinur"

  • hvaða skrefum í kaupferli þarf að fylgjast sérstaklega með

Þess vegna þarf að sérsníða uppsetninguna. Annars vantar of gögn, og þau veita ekki nægjanlega innsýn.

Hvaða mælingar ætti að setja upp í GA4?

Það fer eftir markmiðum fyrirtækisins, en oft er gott að mæla sérstaklega:

  • innsendingar á formum

  • netspjall

  • bókanir/kaup

  • niðurhöl (á skjölum, bæklingum)

  • leit á vefnum

  • smelli á lykilhnappa

  • skref í kaupferli

  • áhorf á myndbönd

Bestu mælingarnar eru þær sem eru beintengdar viðskiptalegum markmiðum.

Fyrir hverja er GA4?

GA4 hentar nánast öllum sem reka vef og vilja bæta árangur.

Það á sérstaklega vel við fyrir:

  • markaðsfólk sem vill skilja virkni vefsins

  • fyrirtæki sem vilja fleiri fyrirspurnir

  • netverslanir sem vilja mæla sölu

  • markaðsteymi sem vilja sjá hvaða herferðir virka

  • vefstjóra sem vilja bæta notendaupplifun

  • stjórnendur sem vilja betri gögn fyrir ákvarðanir

Þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að nota GA4. En þú færð meira út úr því ef mælingarnar eru vel hugsaðar.

Er GA4 mikilvægt fyrir SEO og efnisvinnu?

Já, mjög.

GA4 hjálpar þér að sjá hvaða síður fá umferð, hvaða efni heldur athygli og hvaða síður leiða til aðgerða. Það gerir þér kleift að taka betri ákvarðanir um efnisval, skrif, lendingarsíður og leitarvélabestun.

Það er mikill munur á að fá "heimsóknir" og að fá "rétta heimsóknir". GA4 hjálpar þér að greina þann mun.

Er GA4 líka mikilvægt fyrir auglýsingar?

Já.

Ef þú auglýsir á Google, Meta eða öðrum vefmiðlum þarftu að sjá hvað gerist eftir smellinn. GA4 hjálpar þér að meta hvort auglýsingarnar séu að skila raunverulegum árangri, ekki bara umferð.

Þannig geturðu betur séð:

  • hvaða miðlar skila bestu notendunum

  • hvaða herferðir virka

  • hvaða skilaboð skila árangri

  • hvaða síður taka best á móti umferðinni

  • hvar tækifæri eru til að bæta árangur

Hvað þarf að hafa í huga varðandi persónuvernd?

Góð vefmæling snýst ekki bara um gögn. Hún snýst líka um ábyrgð.

Þegar GA4 er sett upp þarf að passa að mælingar, samþykki og gagnasöfnun séu í lagi. Það þarf að hugsa um hvaða gögn eru mæld, hvenær þau eru send og hvernig notendaval er virt. Það er því ekki nóg að setja bara inn GA4. Það þarf að fara í gegnum stillingar sem tryggja að sé í samræmi við lög um vefkökur og persónuvernd. Einnig þarf að passa að það sé uppsett löglegt vefkökusamþykki og að GA4 sé rétt tengt við það.

Rétt uppsetning er því bæði spurning um betri innsýn og betri vinnubrögð.

Hvernig færðu meira virði úr GA4?

Þú færð mest virði úr GA4 þegar þú:

  • skilgreinir markmiðin þín skýrt

  • mælir það sem skiptir raunverulega máli

  • hreinsar út óþarfa gögn

  • skilur hvaða skýrslur skipta máli

  • notar niðurstöðurnar til að bæta vefinn og markaðsstarfið

GA4 á ekki bara að vera uppsett. Það á að vera notað.

Niðurstaða: Af hverju skiptir GA4 máli?

GA4 hjálpar þér að skilja betur hvað er að gerast á vefnum þínum. Það getur sýnt þér hvað virkar, hvað virkar ekki og hvar næstu tækifæri liggja.

En stærsta atriðið er þetta: sjálfgefna útgáfan er sjaldan nóg.

Ef þú vilt fá raunverulegt virði úr GA4 þarftu að stilla það út frá þínum markmiðum. Þá verður það ekki bara talningartól heldur verkfæri sem styður við betri markaðssetningu, betri vef og betri ákvarðanir.

Efnisorð

  • Google Analytics
  • Vefmælingar
  • GA4
  • Persónuvernd

Viltu vita meira?

Algengar spurningar um google analytics 4

Hvað er Google Analytics 4?

toggle
Google Analytics 4 er mælitól frá Google sem sýnir hvernig notendur haga sér á vefnum þínum eða í appi.